sjósund

29.08.2011 19:08:14 / sjosund

Bessastaðasund

Í dag, 29 ágúst stóð sjósundfélag lögreglunnar fyrir sundi frá Ægissíðunni að Bessastöðum.  Lagt var upp með að synda styðstu leið eða 2,5 km, en við athugun á korti að sundi loknu virðist sem vegalengdin hafi verið um 2,85 km þar sem við komum að landi.    Að þessu sinni þeyttu þeir Jón Kristinn Þórsson og Arnþór Davíðsson sundið.  Hitastig var tæpar 12 gráður.  Sjórinn var verulega úfinn og leiðinlegur til að byrja með en var orðinn sléttur og flottur nær Álftanesinu.  Að sundinu loknu slökuðum við á í heitapottinum í Nauthólsvík þar sem við vorum um klukkustund að ná í okkur hita.  Sundtíminn var 01:20 mín.  Bátur frá sérsveit ríkislögreglustjórans fylgdi sundmönnum yfir.
-nefndin

» 18 hafa sagt sína skoðun

24.07.2011 21:10:03 / sjosund

...sjósund á ný

Til stendur að hittast í Nauthólsvík kl. 17:00 miðvikudaginn 27. júlí og taka smá sjósund ("upphitun" fyrir þá sem vilja synda Viðeyjarsund lögreglunnar síðar í Ágúst). Hægt er að synda út að pramma, bátum eða yfir í Kópavoginn og til baka.  Aðalatriðið bara koma, hittast og dýfa tánni í kaldan sjó. -nefndin


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.07.2010 15:15:31 / sjosund

Skriðsundsæfingar

Til stendur að taka léttar skirðsundsæfingar í Nauthólsvík á morgun kl. 16:00 (15. júlí).  Við munum þá taka léttar ferðir yfir voginn og til baka.  Það skal tekið fram að við erum engir sérfræðingar í faginu og því öll góð ráð vel þegin.  


Sjáumst hress
-nefndin

» 26 hafa sagt sína skoðun

12.07.2010 20:46:39 / sjosund

Enn einn snilldardagur að baki

Fimmtán syntu til að minnast Eyjólfs Jónssonar í dag, frá Ægissíðu að Álftanesi. Vegalengdin gerði rétt rúma tvo kílómetra í beinni loftlínu en ekki töldum við, sem syntum í aftara hollinu, ósennilegt að hún hafi verið nær 2,4 - 2,6 km í sundlínu.

Fimm lögreglumenn syntu ásamt 10 félögum úr Sjósunds- og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur.  Af lögreglumönnum syntu þau Halldór Sveinsson, Jón Kristinn Þórsson, Arnþór Davíðsson, Erla Dögg Guðmundsdóttir & Gunnar Scheving Thorsteinsson.

Jón stóð á Skeri um hálfa leið og horfði yfir hópinn.  Fylgdarmenn á báti sérsveitar gerðu athugasemd um athæfið og veltu upp möguleika á ógildingu  þessa sunds þar sem það þætti sannað að Jón hafi hvílt sig á leiðinni.  Kalla ég hann sjálfur góðan að hafa staðið í lappirnar á ekki stærra grjóti á þessu litla skeri, m.t.t. þeirra sjóriðu sem ég fann er ég steig á land á Álftanesinu.  Af okkur lögreglumönnum var Halldór fremstur með sundtímann 01:20 klst en við hin fylgdum skammt á eftir.

Veðrið var frábært og sjólag nokkuð gott.  Það var hlýtt og án þess að hafa hugmynd um það, myndi ég telja að sjórinn hafi verið yfir 13 gráður.  Þegar synt var yfir grynningarnar hlýnaði sjórinn mikið, svo um munaði.  Það ver ekkert að hjálpa þegar það dýpkaði á ný, enda sundmenn búnir að vera góðan tíma í sjónum.

- f. hönd félagsins
Arnþór Davíðsson

» 35 hafa sagt sína skoðun

08.07.2010 17:24:05 / sjosund

Bessastaðir 12 júlí. Minning um Eyjólf Jónsson, sundkappa.

Sjósundfélag lögreglunnar ásamt Sjósunds- og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur munu mæta í Nauthólsvík þann 12 júlí og minnast sundhetjunnar Eyjólfs Jónssonar. 

Að því tilefni munum við synda eitt skemmtilegasta sund Eyjólfs að Bessastöðum en þá leið synti Eyjólfur iðulega, hér áður, og kastaði kveðju á forseta Íslands.  Eyjólfur á mörg sundafrek að baki en hann synti m.a. frá Reykjavík til Akraness.  

Slöngubátar munu ferja sundmenn frá Nautholsvík að Ægissíðu þaðan sem verður synt að Bessastöðum.  Bátar munu einnig fylgja sundmönnum í sundinu.  Æskilegt er að fólk mæti tímanlega, síðasta lagi kl. 17:00  og verði tilbúnir til að fara í bátana kl. 17:15.  Sundið sem er um 2 km að lengd ætti að taka um klukkustund í góðum sjó.

Að sundi loknu verður haldið í Nauthólsvík þar sem fólki stendur til boða að hita sig í heita pottinum.

Lögreglumenn, eru sérstaklega hvattir til að fjölmenna í þetta sund.  Látið vita með því að senda fara á félagssíðuna okkar á facebook, og skrá ykkur þar.  Einnig er hægt að skrá sig hér í "comments".  Við þurfum að vita hvað við þurfum marga fylgdarbáta í þetta ævintýralega sund ;) 


f.hönd sjósundfélags lögreglunnar
Arnþór



» 37 hafa sagt sína skoðun

25.06.2010 18:18:49 / sjosund

Góður dagur að baki

Í dag syntu 15 manns frá Viðey til lands við Skarfaklett.  Þar af voru 5 lögreglumenn, þau Hrafn Ásgeirsson, Erla Dögg Guðmundsdóttir, Eiríkur Stefán Einarsson, Jón Kristinn Þórsson og Arnþór Davíðsson.   Þau Hrafn og Erla þreyttu sitt fyrsta sjósund af þessari stærðargráðu og stóðu sig ótrúlega vel.  Ásamt lögreglumönnum syntu 10 meðlimir úr öðrum sjósundsfélögum.  Bátur frá sérsveit ríkislögreglustjóra fylgdi sundmönnum, leiðina yfir.  

Berglind Eyjólfsdóttir, ekkja Jóns Otta stappaði stálinu í okkur sundmenn fyrir sprettinn og tók svo hlýlega á móti okkur, skjálfandi hríslunum, að átökunum loknum.

Sundmenn sameinuðust síðan í heitapottinum í Nauthólsvík þar sem hlegið var saman í veðurblíðunni.

Veðrið var gott, þó svo skýjað hafi verið en sjórinn var u.þ.b. 13 gráður.  

-Arnþór

» 26 hafa sagt sína skoðun

17.06.2010 17:24:58 / sjosund

Minningarsund

Synt verður til minningar um Jón Otta, föstudaginn 25 júní næstkomandi.  Jón var lögregluvarðstjóri í Reykjavík og formaður sjósundfélags lögreglunnar til margra ára.  Á þeim árum var svakalega mikið líf og fjör á sundstöðum.  Jón geislaði ávallt af gleði og var góður félagi. 

Fyrir þá sem ekki hafa synt áður er æskilegt að sundmenn mæti í íþróttafatnaði til að vera í á slöngubátnum, sem hægt er að skella sér í eftir sundið til að ylja sér.  Mælst er til þess að synt sé með sundhettur, en það er ekki nauðsynlegt.  Einnig er mjög ráðlegt að menn skelli sér í heitapottinn í Nauthólsvík til að ná upp góðum hita í kroppinn og skemmti sér þar áfram :) 

Mæting er klukkan 14:00 að bryggjunni við Skarfaklett (þar sem Viðeyjarferjan er) þar sem sundmenn verða ferjaðir með slöngubát að Viðey.  Þaðan sem síðan verður synt að Skarfakletti (Sundahöfn).  Sundið er tæpur kílómeter að lengd og ætti að taka um 30 mínútur í góðum sjó.  Hér er ekki um kappsund að ræða, heldur skemmtisund þar sem félagar geta notið náttúrunnar beint í æð á þessum fallega stað.  

-nefndin

» 31 hafa sagt sína skoðun

30.01.2010 00:10:52 / sjosund

Miðnætursund

Farið verður í miðnætursund næstkomandi sunnudag þar sem synt verður milli mánaða.  Sturtuaðstaðan í Brokey verður opin.  Mæting rétt fyrir miðnæti - allir velkomnir.

-Sjáumst hress

Arnþór.

» 24 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 16:38:17 / sjosund

Nýárssund

Sjósundfélag lögreglunnar vill minna á hið árlega nýárssund.  Synt verður frá Nauthólsvík um kl. 12:00 á nýársdag.  

Brrrrr.

» 22 hafa sagt sína skoðun

31.10.2009 14:13:11 / sjosund

Miðnætursund

Heyrst hefur að fyrirhugað sé að taka miðnætursund í kvöld til að synda milli mánaða.  Synt verður í Nauthólsvík, en ekki er vitað hvort einhver aðstaða verður í boði.  Sjósundfélag lögreglunnar stendur ekki fyrir þessu skemmtilega sundi, en stefnum að því að mæta.  Eins og áður verður pottþétt frábær stemming á staðnum.

Arnþór.


» 28 hafa sagt sína skoðun

24.09.2009 18:36:25 / sjosund

Fögnum október og syndum

Vegna mikillar eftirspurnar hefur stjórn sjósundfélagsins ákveðið að standa fyrir miðnætursundi miðvikudaginn 30 september.  Munum við synda út úr september  og inn í október mánuð og fagna nýjum sundmánuði með stíl.

Það var gífulega góð mæting í síðasta sund þar sem 11 mættu og þar af 3 konur. Einhverjir komust ekki þar sem það sund var auglýst með mjög skömmum fyrirvara. Vonum við að sundið nú verði eins skemmtilegt.  Þá var synt í snarvitlausu veðri í kolniðarmyrkri en sundið var frábært í alla staði.  Það er ólýsanlegt að horfa á borgarljósin frá yfirborði sjávar og upplifa náttúruna með þessum hætti.

Eins og í síðasta sundi er ekki verið að tala um krefjandi álagssund, fremur ánægjulegt slökunar & skemmtisund.  Við skorum á að fólk syndi ekki fjarri landi til að tryggja öryggi.  Einnig að menn haldi hópinn.

Æskilegt er að fólk hafi sundettur, sundgleraugu og "light-stick" ljós fest við sundhettuna (teygjan á sundgleraugunum festa ljósið).


Sjáumst hress.

fyrir hönd sjósundfélags lögreglunnar,
Arnþór Davíðsson, ritari

(s. 695-1530 / arnthord@gmail.com )

» 28 hafa sagt sína skoðun

12.09.2009 22:36:43 / sjosund

Miðnætursund

Fyrirhugað er að taka miðnætursund, sunnudaginn 13 september.

Ekki er búið að negla niður staðsetningu sundsins, en planið er að njóta borgarljósanna  í niðamyrkri.  Sundið mun ekki vera hugsa sem krefjandi álagssund, fremur sem slökunar og skemmtisund nálægt landi.

Áhugasamir tilkynni þátttöku til Arnþórs í síma 695-1530 eða í netfangið arnthord@gmail.com

Arnþór Davíðsson
ritari, sjósundfélags lögreglunnar

» 20 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 21:10:46 / sjosund

Þökkum fyrir okkur

Fyrir hönd sjósundfélags lögreglunnar þakka ég fyrir okkur.  Þetta er búið að vera stórskemmtilegt sjósundsumar í ár.  (Við erum samt langt frá því að vera hættir þar sem planað er að taka einhverjar kuldadýfur í vetur.) 

Sumarið
Byrjað var á nokkrum léttum upphitunaræfingum í Nauthólsvík en fljótlega var tekið á vaðið og synt frá Bessastöðum yfir í Nauthólsvík í minningarsundi Jóns Otta, fyrrum formanns félagsins.  Venjan hefur verið að synda frá Viðey en ákváðum við að bridda á nýju þetta árið, enda aðstaðan svo góð í Nauthólsvík.  Farið var með slöngubát yfir að nesinu þar sem sundmenn demdu sér í sjóinn og tóku sundið sem mældist rétt rúmir 2 km.  Sjórinn var nokkuð hlýr og sjólag mjög gott.    Tók sundið síðasta mann 71 mínútu.  Var þátttakan mjög góð, en 6 sundmenn létu vaða [Ágúst, Halldór, Sigfús, Jón, Gunnsteinn & Arnþór].

Farið var nokkuð reglulega á æfingar þar sem synnt var í Nauthólsvík, þá aðalega yfir í Kópavog og til baka.  Þegar sjóveður var vont var iðulega látið duga að fara út að bátum og svo til baka.  Synntum við ávallt tveir eða fleiri.

Auglýstum við kynningasund á póstmiðli lögreglunnar og var þátttakan mun betri en við gerðum ráð fyrir.  11 mættu og prófuðu að demba sér í kaldan sjó á eftir Jóni.  Sjórinn var kaldur og sjólag vont á þeim degi en menn létu það ekki stoppa sig.

Tveir úr félaginu þreyttu Viðeyjarsund Lyfju, hópsund sumarsins og syntu báðar leiðir.  Sjórinn var þá um 10,5° var æfingin því góð fyrir áheitasundið í september.  164 syntu það sund en 47 báðar leiðir.

Áheitasund 5 september
Sérstaklega vil ég þakka góða mætingu og þatttöku á Miðbakka, Reykjavíkurhöfn þann 5 september síðastliðinn.  Ég veit ekki betur en að áheitasöfnunin hafi gengið mjög vel fyrir sig.  Af því sem ég fékk að upplifa af stemminguni get ég ekki lýst henni nema á einn hátt "frábær!". 

Benedikt Hjartarson og Ísleifur Friðriksson eiga mikið í þessu sundi & við þökkum þeim fyrir frábæra framistöðu þar sem þeir hjálpuðu okkur í þessu stórskemmtilega ævintýri. 

Fjórir sundmenn þreyttu sundið og kláruðu 3 alla vegalengdina um 4,5 km [á 02:15 klst. í sundskýlu, hettu & með sundgleraugu (létt júgursmysl smurning)]. Tveir þurftu að fara í upphitun á slysadeild til að ná upp líkamshita en þeir voru orðnir vel kaldir. Tveir komust í upphituð fiskikör á trillu þarna við smábátabryggjuna út frá Faxagarði sem var algjör himnasending.  Þeir sem kláruðu sundið: Sigfús Benóný Harðarsson, Jón Kristinn Þórsson & Arnþór Davíðsson.

Sigfús leiddi lang mest af og vorum víð skjaldbökurnar í sífellu að reyna að hægja á honum svo hann færi ekki langt á undan okkur.  Taktísk mistök sem við lærum af, en í svona sundi verður hver að synda með sínu nefi til að klára, því þegar menn hægja á ferðinni eru þeir fljótir til að kólna og fá krampa eins og Sigfús lenti í einhverstaðar fyrir miðri leið.  Hann beit samt á jaxlinn & kláraði sundið.  Jarðýtan Jón tók þá við forustunni lang mest af því sem eftir var.


Sundmaðurinn sem synti rúma 2 km var svo gott sem meðvitundarlaus er hann var tekinn upp í fylgdarbátinn en svo mikill var eldmóður hans og kappsemi við að þreyta þessa þraut.  Hann hafði verið staddur í sumarbústaðhverfi í Borgarnesi að gera sér glaðan dag kvöldið áður er hann ákvað að skella sér í sundið, nánast óundirbúinn.  Hann var að sýna samstöðu en liður hans til að synda var bæði kvatning fyrir okkur, eins Svein Bjarka Sigurðsson.  Hann hafði orð á því að hann hefði ekki unnið með Sveini og þekkti hann varla nema í sjón á göngum lögreglustöðvarinnar.  Þessi samstöðuyfirlýsing hans er gott dæmi um hverskonar mannauð þessi stétt samfélagsins hefur að geyma.  Á göngum þessarar stofnunar sér maður svo iðulga menn fúsa að vaða eld og brennistein fyrir fólk sem það þekkir ekkert.  Þetta eru mennirnir sem ég myndi fara á tunglið með, ef þangað þyrfti ég að fara!


Með þökk og virðingu.
Arnþór

» 27 hafa sagt sína skoðun

01.09.2009 16:15:19 / sjosund

Áheitasund

Laugardaginn 5 september næstkomandi stendur til að synda "hetjusund", áheitasund til styrktar Sveini Bjarka Sigurðssyni félaga okkar innan lögreglunnar sem nýlega greindist með krabbamein.  Markmiðið með sundinu er að sýna honum stuðning þar sem nokkrir starfsbræður munu takast á við lengra og erfiðara sund en þeir hafa nokkurn tímann synt til þessa.  "Við munum allir sigra"  verður slagorð dagsins. 

Enginn okkar getur státað sig af einhverjum sérstökum sundafrekum í sundlaug þó svo við höfum allir buslað í sjó.  Ætlunin verður þó að synda hið ,,orginal'' Viðeyjarsund sem gerir um 4,5 km.  Synt verður frá Viðeyjarbryggju inn í Reykjavíkurhöfn.  Þar sem lögreglumenn, félagar og aðrir góðir gestir munu taka á móti fólki.  Við gerum ráð fyrir að leggja af stað frá Viðeyjarbryggju um kl. 10:00 og koma helst ekki síðar en kl. 12:00 að Miðbakka við Reykjavíkurhöfn.  Fylgdarbátur mun fylgja sundmönnum.

Prógram við Reykjavíkurhöfn:
Stefnt verður að því að vera með einhverskonar prógram við Reykjavíkurhöfn (Miðbakka) þar sem til greina kemur að vera með grill, sýna tæki lögreglunnar, svo sem bifhjól, lögregluhundinn Dýrmund Dýra og eitthvað fleira. 

Þeir sem vilja leggja honum og fjölskyldu hans lið geta lagt inn á söfnunarreikning 0515-14-404200 kt. 040974-3939.

fyrir hönd sjósundfélag lögreglunnar

Arnþór Davíðsson
ritari, sjósundfélagi lögreglunnar


» 37 hafa sagt sína skoðun

22.08.2009 16:47:42 / sjosund

Reynt á þolrifin

Miðvikudaginn 19 ágúst reyndu þrír lögreglumenn á þolrifin á skipulagðri langsundsæfingu út frá Nauthólsvík.

Annarsvegar var farið um 4 km en einn sundgarpanna synti um 2 km.  Tilgangur æfingarinnar var sá að sjá gróflega hvar þolmörkin liggja ef synt er með lágmarksbúnað sem telur til sundskýlu, sundgleraugna og sundhettu.  Sá er synti 2 km var einungis í sundskýlu, en hann mætti síðar í sundið. 

Syntum við sundið nokkuð hægt en tekin voru létt bringussundstök með skriðssunds sprettum á milli.  Þeir sem syntu lengra sundið voru 110 mínútur í sjónum.  Sjórinn var spegil sléttur og aðstæður hinar bestu.  Vorum við sammála því að við hefðum hæglega getið verið lengur í sjónum.  Einnig er það ljóst að sunhettur skipta miklu máli í lengri sundi og myndum við telja þær nauðsynlegar.

Er það von félagsins að taka sprettinn og reyna við lengra sund en tekist hefur verð á um  hjá félaginu undanfarið.  Hugmyndin er að synda frá Viðey inn í Reykjavíkurhöfn sem gerir um 4,3 km í beinni loftlínu. Sundið mun líklega vera um 4,5 km í sundlínu.  

Ekki getum við sagt að einkennin sem komu upp á langsundsæfingunni hafi verið veruleg en taka þarf tillit til þess að sjórinn er töluvert hlýrri í víkinni en út við Viðey.  Munu menn því að öllum líkindum nota einhverskonar smurningu eða skárri fatnað í því sundi ef sjórinn verður kaldur. 

Stefnt er að því að synt verði í kringum 5 september en áhugasömum lögreglumönnum er bent á að skrá sig hjá Jóni Kristni Þórssyni með því að senda tölvupóst á netfangið jonkth@rls.is 

Arnþór Daviðsson
ritari sjósundfélags lögreglunnar 

» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan